| Lestrarsprettur - Lokadagur á morgun föstudag |
|
|
|
| Thursday, 04 March 2010 | |
|
Nú hafa nemendur í Hörðuvallaskóla lesið í 142.411 mínútur síðan lestrarspretturinn hófst, 22 febrúar síðastliðinn. Markmiðið var að lesa í 134.191 mínútu þannig að því hefur verið náð. Alls hafa 11 bekkir náð markmiðum sínum, þar af hefur einn bekkur farið 3.200 mínútum fram úr markmiði sínu. Lestrarsprettinum lýkur á morgun föstudag og því er um að gera að lesa af krafti í dag. Starfsmenn Hörðuvallaskóla eru mjög ánægðir og stoltir af þessum frábæra árangri nemenda í lestrarsprettinum og hvetur þá til að halda áfram á sömu braut. |
|
| Síđast uppfćrt ( Thursday, 04 March 2010 ) |
| < Fyrri | Nćsti > |
|---|