|
Lestrarsprettur - 4 dagar búnir |
|
Friday, 26 February 2010 |
|
Nemendur í 1 - 9 bekk í Hörðuvallaskóla hafa sett sér það markmið að lesa í 134.191 mínútu á þeim 12 dögum sem lestrarspretturinn nær yfir. Í dag föstudaginn 26. febrúar er fjórum heilum dögum lokið (mánudagur til fimmtudags) og nemendur búnir að lesa 41% af heildarmarkmiðinu eða í 54.889 mínútur.
Þetta er frábær árangur og starfsfólk Hörðuvallaskóla óskar nemendum til hamingju með þennan áfanga og hvetur þá jafnframt til að lesa sem lengst um helgina.
|
|
Síđast uppfćrt ( Friday, 26 February 2010 )
|
|
|
2. bekkur í Alţingishúsinu |
|
Friday, 19 February 2010 |
|
Í dag fóru nemendur í 2 bekk í heimsókn í Alþingishúsið og röltu um miðbæinn. Þessi ferð var farin í tengslum við verkefni í samfélagsfræði. Öllum fannst mjög áhugavert að koma inn í Alþingishúsið sem þau hafa svo oft og mörgum sinnum séð í fréttunum eða á rás 7 eins og ein daman orðaði það. Við skoðuðum myndir af öllum ráðherrunum í einum gangi, kíktum í kringluna sem var byggð við Alþingishúsið árið 1908 og komum okkur fyrir á þingpöllunum.
Vettvangsferðin gekk vel fyrir sig og allir stilltir og prúðir. Þau fengu síðan bækling um Alþingi að heimsókn lokinni.
|
|
|
Friday, 19 February 2010 |
|
Lestrarsprettur - Lesum saman - Í skóla og heima
Mánudaginn 22. febrúar hefst lestrarsprettur í Hörðuvallaskóla og stendur yfir í tvær vikur.
Tilgangur með lestrarspretti er að efla áhuga nemenda á bókum og auka færni þeirra í lestri.
Þessar tvær vikur lesa nemendur í 15 mínútur á hverjum morgni í skólanum. Að loknum skóladegi er reiknað með að nemendur lesi heima í 15 mínútur eða meira. Allir nemendur fá bókamerki til að skrá hjá sér lesturinn.
Hver bekkur setur sér markmið um hve lengi nemendur ætli að lesa samtals þessar tvær vikur.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Úrslit 13 - 16 af 80 |