Engin kennsla 10. febrúar
Tuesday, 09 February 2010

Miðvikudaginn 10. febrúar verða foreldra/nemenda viðtöl í Hörðuvallaskóla og senda umsjónarkennarar foreldrum viðtalstíma.

Engin kennsla er í skólanum viðtalsdaginn en Dægradvöl er opin frá kl. 8:05 til 17:15 fyrir þá nemendur sem eru venjulega í Dægradvöl.

Síđast uppfćrt ( Tuesday, 09 February 2010 )
 
Ferđalög hjá 5. og 6. bekk
Tuesday, 02 February 2010
Í síðustu viku fóru nemendur í 5 bekk að skoða Landnámssýninguna Reykjavík 871±1. Þessi ferð var farin í tengslum við verkefni í samfélagsfræði um landnámið. Bekkirnir fóru sitt hvorn daginn og umsjónakennarar hrósa nemendum fyrir góða frammistöðu.

Nemendur í 6. bekk fengu boð frá Sjóminjasafninu Víkinni um að koma í heimsókn í síðustu viku. Safnið var skoðað og síðan farið um borð í varðskipið Óðinn. Skipið átti einmitt 50 ára afmæli þennan dag. Farið var með strætisvagni og hrósa umsjónarkennarar nemendum og þeim foreldrum sem brugðust skjótt við og komu með fyrir frábæra ferð.

 
Kennsla hefst 5. janúar
Monday, 04 January 2010
Kennsla að loknu jólaleyfi hefst í Hörðuvallaskóla þriðjudaginn 5. janúar samkvæmt stundaskrá.
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>

Úrslit 17 - 20 af 80

Dagatal

« < September 2010 > »
S M Ţ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2

Syndicate