|
Söngvarakeppni Hörđuvallaskóla |
|
Wednesday, 21 October 2009 |
|
Söngvarakeppni nemenda verður haldin í dag miðvikudaginn 21. október í Sal Hörðuvallaskóla og hefst klukkan 8:05 og stendur til kl. 9:30
Nemendur í 5 - 9 bekk taka þátt í söngvarakeppninni en hver bekkur velur sér fulltrúa, einstakling eða hóp sem fulltrúa bekkjarins. Ef margir vilja taka þátt mega tvö atriði vera frá bekk. Nemendur í 1- 4 bekk taka þátt með því að horfa á.
Dómnefnd velur bestu atriðin og verða úrslit birt hér á síðunni um leið og þau liggja fyrir.
|
|
Síđast uppfćrt ( Wednesday, 21 October 2009 )
|
|
|
Monday, 12 October 2009 |
|
Lestrarsprettinum lauk í dag með frábærum árangri nemenda í 1. til 7. bekk. Nemendur í fyrsta bekk lásu á sínum forsendum með foreldrum sínum og verður spennandi að sjá framfarirnar hjá þeim í næsta lestrarspretti.
Þeir 257 nemendur sem eru í 2. til 7. bekk gerðu sér lítið fyrir og lásu heilar 73.341 blaðsíður á þessum tveim vikum sem er ótrúlega flottur árangur. Það gera rúmar tuttugu blaðsíður á dag alla 14 dagana á hvern nemanda í 2. til 7. bekk.
Við þökkum nemendum og foreldrum þeirra kærlega fyrir frábæra þátttöku í lestrarspretti haustsins. Næsti lestrarsprettur verður í Hörðuvallskóla í febrúar.
Með bestu kveðju, starfsfólk Hörðuvallaskóla
|
|
Síđast uppfćrt ( Tuesday, 13 October 2009 )
|
|
|
Friday, 02 October 2009 |
|
Nemendur Hörðuvallaskóla hafa lesið samtals 29.904 blaðsíður í lestrarsprettinum í þessari viku sem er frábær árangur. Nú hvetjum við nemendur til að taka hraustlega á í lestrinum um helgina. Gaman væri ef þið, nemendur og foreldrar, hafið tækifæri til að fara á almennings bókasöfn um helgina að sækja ykkur skemmtilegt lesefni fyrir næstu viku.
Góða helgi, starfsfólk Hörðuvallaskóla.
|
|
Síđast uppfćrt ( Friday, 02 October 2009 )
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Nćsta > Endir >>
|
| Úrslit 29 - 32 af 80 |