|
1. desember hátíđ í Hörđuvallaskóla |
|
Wednesday, 28 November 2007 |
|
Þar sem fyrsti desember er á laugardegi verður hin árlega 1. desember hátið Hörðuvallaskóla haldin föstudaginn 30. nóvember.
Dagskráin hefst kl. 8:30.
Fram koma nemendur, starfsmenn og aðrir góðir gestir.
Sunshines liðið kynnir LEGO verkefnið þar sem nemendur stóðu sig frábærlega vel.
Þá verður opnuð sýning á myndverkum nemenda.
Foreldrafélagið býður nemendum upp á kleinu og pönnuköku en selja foreldrum og öðrum gestum kaffi og bakkelsi til fjáröflunar fyrir félagið.
Foreldrar og aðrir velunnarar eru velkomnir á hátíðina.
|
|
|
Sunday, 11 November 2007 |
|
LEGO lið Hörðuvallaskóla SUNSHINES stóð sig frábærlega í keppninni í gær. Þau sýndu góða liðsheild og það ríkti mikil gleði hjá liðinu allan keppnisdaginn. Liðið fékk tvær tilnefningar til verðlauna;
- Besta hönnun og forritun á vélmenni. Þar leita dómarar að vélmenni sem sker sig úr vegna nýsköpunar og/eða áreiðanleika.
- Besta rannsóknarverkefnið. Áhrifamikil framsetning á verkefni hefst með því að tileinka sér efnið sem verið er að kynna. Verja tíma og fyrirhöfn í að lesa og skilja þau vísindi sem rannsóknarspurningin snýst um. Nota fjölbreyttar upplýsingaveitur sem skila sér í jákvæðum áhrif á heildarframsetningu rannsóknarverkefnisins.
Nánar um úrslit á heimasíðu keppninnar http://www.firstlego.is/id/1023150 Von er á myndum frá keppnisdeginum á sömu heimasíðu á næstu dögum.
Við óskum SUNSHINES innilega til hamingju með árangurinn og erum gríðalega stolt af frammistöðu þeirra.
|
|
|
Saturday, 10 November 2007 |
|
LEGO lið Hörðuvallaskóla SUNSHINES keppir í dag á LEGO hönnunarkeppninni í Öskju, Náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands. Hægt er að horfa á keppnina í beinni útsendingu á netinu. Nánari upplýsingar á heimasíðu keppninnar http://www.firstlego.is/
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Nćsta > Endir >>
|
| Úrslit 69 - 72 af 80 |