Fréttir

Tilkynningar

Viðburðir

24.04.2024 kl. 08:00 - Bókasafn Kópavogs

„Hún skín í hjörtum okkar“

Hugleiðingar um vináttuna eftir börn í fjórðu bekkjum grunnskóla Kópavogs. Verkin, sem eru í formi texta og teikninga, voru unnin að loknum heimsóknum barnanna í Bókasafn Kópavogs í mars 2024 þar sem Bergrún Íris Sævarsdóttir, rithöfundur og teiknari, ræddi við þau um sköpunarkraftinn og vináttuna.Sýningin er á annarri og þriðju hæð bókasafnsins og stendur yfir frá 24. apríl til 12. maí næstkomandi.Sýningin er liður í Barnamenningarhátíð í Kópavogi 2024. Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar styrkir hátíðina.
28.04.2024 kl. 20:00 - Salurinn

Ástir (& Ásláttur)

Dýnamík, tónlitun, kraftur Þrjú mögnuð tónverk frá 20. öld prýða efnisskrá þessara tónleika þar sem fram koma píanóleikararnir Erna Vala Arnardóttir og Romain Þór Denuit ásamt slagverksleikurunum Frank Aarnink og Kjartani Guðnasyni. Ballettinn Petrúska er eitt vinsælasta og áhrifamesta verk Igor Stravinskys og hljómar hér í glænýrri útsetningu Ernu Völu og Romain Þórs fyrir tvo flygla og tvo slagverksleikara. Hér verða einnig fluttir valdir kaflar úr meistaraverkinu West Side Story eftir Leonard Bernstein í útsetningu fyrir tvo flygla og slagverk en útsetninguna gerði Irwin Kostal að beiðni Bernstein sjálfs, fyrir hinar heimsþekktu Labèque systur. Tónleikunum lýkur svo með einu margrómaðasta kammerverki 20. aldarinnar, Sónötu fyrir tvö píanó og slagverk eftir Béla Bartók. Verkið sló í gegn strax við frumflutning árið 1937 og hefur allar götur síðan verið á meðal vinsælustu tónverka ungverka tónskáldsins og píanóvirtúóssins. Efnisskrá:Igor StravinskyPetrúska fyrir tvo flygla og tvo slagverksleikara í útsetningu Ernu Völu Arnardóttur og Romain Þórs Denuit Leonard BernsteinÚr West Side Story fyrir tvo flygla og tvo slagverksleikara í útsetningu Irwin KostalBéla BartókSónata fyrir tvö píanó og slagverk Á undan tónleikunum verður boðið upp á tónleikaspjall í forsal Salarins þar sem fjallað verður um efnisskrá dagsins. Tónleikakynningin hefst klukkan 19:00 og stendur í um 30 mínútur. Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
30.04.2024 kl. 10:00 - Bókasafn Kópavogs

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman hittist alla þriðjudaga á 2. hæð aðalsafns kl. 10. Heitt á könnunni og öll velkomin! Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman | Bókasafn Kópavogs
30.04.2024 kl. - Menning í Kópavogi

Logar í skýjum

Logar í skýjum er heiti vortónleika Karlakórs Kópavogs að þessu sinni. Við fögnum logandi vorsólarlaginu með söngvum um logandi tilfinningar, ást, eftirsjá, vonir, þrár, söknuður, svik og sættir. Til að kynda ennfrekar í öllu þessum glæðum verður með okkur einvala lið listamanna, Viðar Gunnarsson bassi, Gissur Páll Gissurarson tenór og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari. Brennustjóri er Sigurður Helgi og kveikt verður í kl 20.00 30. apríl og 2 maí. Að loknum tónleikum geta gestir sest niður í brekkuna við Digraneskirkju, skoðað kynjamyndir í skýjunum og velt fyrir sér tilgangi lífsins. Við hlökkum til að hitta ykkur Miðasala er á Tix.is
01.05.2024 kl. 14:00 - Bókasafn Kópavogs

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín

Hannyrðaklúbburinn Kaðlín hittist alla miðvikudaga á 2. hæð aðalsafns. Heitt á könnunni og allir velkomnir! Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Kaðlín | Bókasafn Kópavogs.
02.05.2024 kl. 15:00 - Bókasafn Kópavogs

Lesið á milli línanna

Á fundinum 2. maí tökum við fyrir bókina Minningaskrínið eftir Kathryn Hughes. Jenny opnar skrínið sem hún hefur varðveitt í marga áratugi. Þar geymir hún dýrmætustu minjagripi sína, þar á meðal steinvölu, útskorna styttu og blaðaúrklippu sem hún afber varla að líta á. Hún veit að loksins er tíminn runninn upp. Eftir stríðið skildi hún hluta af hjarta sínu eftir í sjávarþorpi á Ítalíu. Hún verður að snúa aftur til Cinque Alberi, hve erfitt sem það mun reynast, og sættast við fortíðina. Candice átti erfiða æsku en nú dreymir hana um framtíðina með manninum sem hún elskar – en er hann sá sem hún telur hann vera? Þegar Candice fær tækifæri til að ferðast með Jenny til Ítalíu veit hún ekki að ferðin mun opna augu hennar fyrir óþægilegum staðreyndum. Getur kveðjustund annarrar konu veitt henni kjark til að byrja upp á nýtt? Byggt á sönnum atburðum. Bókaklúbburinn hentar öllum hressum konum sem vilja hittast, lesa á milli línanna og spjalla um yndislestur á léttu nótunum. Lesin er ein bók á mánuði sem er svo rædd fyrsta fimmtudag í mánuði á fundum klúbbsins. Allar konur velkomnar á meðan húsrúm leyfir. Hlökkum til að hitta ykkur! Fylgist með í Facebook-hópnum Lesið á milli línanna | Bókasafn Kópavogs. Hjartanlega velkomnar!
04.05.2024 kl. 11:30 - Bókasafn Kópavogs

Lesið fyrir hunda

Bókasafn Kópavogs ásamt Vigdísi, vinum gæludýra á Íslandi, býður börnum að lesa fyrir hunda sem hafa fengið sérstaka þjálfun í að hlusta á upplestur. Skráning fer fram á eyrun.osk@kopavogur.is  Viðburðurinn er hugsaður fyrir 5-12 ára börn sem eru byrjuð að lesa sjálf. Lestrarstundin er ekki ætluð börnum sem glíma við hundahræðslu heldur er markmiðið að auka öryggi við lestur, ekki síst hjá þeim sem eiga við lestrarörðugleika að stríða. Hundurinn hjálpar barninu að slaka á, gagnrýnir ekki lesturinn og leiðréttir ekki barnið.
04.05.2024 kl. 14:00 - Salurinn

Herra Hnetusmjör - Fjölskyldutónleikar

LOKSINS er ég að halda tónleika fyrir alla fjölskylduna! Sitjandi tónleikar í Salnum Kópavogi. EKKERT ALDURSTAKMARK
04.05.2024 kl. 13:00 - Menning í Kópavogi

Dr. Bæk í Kópavogi

Dr. Bæk verður við Náttúrufræðistofu Kópavogs, laugardaginn 4. maí frá 13 - 15, og býður upp á fría ástandsskoðun á hjólum. Doktorinn kemur með farandskoðunarstöðina sína, pumpu, olíur og nokkra skiptilykla,skoðar hjólin og vottar heilsu þeirra. Alls konar spurningar leyfðar.Hlökkum til að sjá ykkur í sumarblíðunni.
06.05.2024 kl. 08:00 - Bókasafn Kópavogs

Bókamarkaður

Mánaðarlegi bókamarkaðurinn okkar er á aðalsafni þessa vikuna. Bækur og fleira á góðu verði.
07.05.2024 kl. 10:00 - Bókasafn Kópavogs

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman

Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman hittist alla þriðjudaga á 2. hæð aðalsafns kl. 10. Heitt á könnunni og öll velkomin! Nánari upplýsingar veitir Gréta Björg Ólafsdóttir, gretabjorg@kopavogur.is Fylgist með í Facebook-hópnum Hannyrðaklúbburinn Garn og gaman | Bókasafn Kópavogs
08.05.2024 kl. 16:00 - Bókasafn Kópavogs

Bókmenntaklúbburinn Hananú!

Bókmenntaklúbburinn Hananú! hittist í Huldustofu á 3. hæð aðalsafns.  Annan hvern miðvikudag hittist á bókasafninu fremur siðprúður hópur fólks og ræðir hinar fögru orðlistir. Komið bara og gangið í bæinn, tölum um bækur – og Hananú! Fylgist með í Facebook-hópnum Bókmenntaklúbburinn Hananú | Bókasafn Kópavogs.
Fleiri viðburðir

Hafðu samband

 

Hringdu í 441 0000

ef þig vantar aðstoð, svör eða nánari upplýsingar. Opnunartími Þjónustuversins er mánudaga - fimmtudaga frá 8 - 16 en frá 8 - 13 á föstudögum.

Hringja

 

Sendu okkur póst

Við tökum á móti ábendingum og fyrirspurnum í gegnum tölvupóst. Smelltu á merkið hér að ofan til að senda okkur póst.

Senda póst

 

Þarftu að senda viðkvæm gögn á öruggan hátt til Kópavogsbæjar

Notendur geta sent Kópavogsbæ viðkvæmar skrár eftir að þeir hafa auðkennt sig með rafrænum skilríkjum.

Gögnum er eytt úr Signet transfer eftir að viðkomandi hefur sótt þau.

Signet