Óveðursáætlun

Röskun á skóla- og frístundastarfi

Leiðbeiningar frá SHS

Mikilvægt er að foreldrar/forráðamenn fylgist sjálfir með fréttum af veðri, veðurspám og öðrum upplýsingum sem gætu haft áhrif á skóla- og frístundastarf barnanna og hegði sér í samræmi við aðstæður hverju sinni. Aðstæður geta þróast með ófyrirséðum hætti og verið mismunandi eftir svæðum.

Skólar, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar eru opnar nema annað sé tilkynnt. Í upphafi skóladags getur mönnun skóla verið takmörkuð og geta foreldrar þá búist við því að starfsfólk leiti liðsinnis þeirra. Foreldrar eru hvattir til að taka slíkum óskum vel.

Foreldrar leggja ávallt sjálfir mat á það hvort fylgja þurfi barni í skóla, óháð því hvort tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla skulu þeir tilkynna skólanum um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlilega fjarvist. Sama gildir ef börn eða foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa. 

Mikilvægt er að fólk fari ekki af stað til skóla eða vinnu ef það treystir sér ekki eða er vanbúið til farar, svo sem vegna þess að bifreið er vanbúin til vetraraksturs.

Ef óveður brestur á, á skólatíma, skal hafa í huga að nemendur eru öruggir í skólanum og foreldrar þurfa ekki að hafa áhyggjur af börnum sínum. Nemendur eru ekki sendir heim ef búið er að lýsa yfir óveðri.