Blár dagur föstudaginn 9. apríl

Föstudaginn 9. apríl er blár dagur. Þann dag eru nemendur og starfsmenn  hvattir til að klæðast einhverju bláu.

Blár dagur er til að stuðla að vitundarvakningu um málefni barna með einhverfu. Við erum öll allskonar og mikilvægt að taka umræðu um það við börnin. Með því að klæðast bláu á föstudaginn fögnum við fjölbreytileikanum með samstöðu allra.

Hér má nálgast nánari upplýsingar um verkefnið


Athugasemdir