Mötuneyti

👉 Matseðill október 2024 👈


Hádegismatur er eldaður í eldhúsi skólans í Baugakór. Matseðill tekur mið af leiðbeiningum Lýðheilsustöðvar um hollustu og næringu. Einnig er boðið upp á grænkerafæði. Foreldrar/forsjáraðilar skrá börn sín í hádegismat í gegnum þjónustugátt Kópavogsbæjar.

Hádegismatur er án endurgjalds en nauðsynlegt er fyrir foreldra að skrá börnin sín í hádegismat. 

Eldri matseðlar: ág./sept. 2024 | maí/jún. 2024 | apríl 2024 | mars 2024


 Athugið að Hörðuvallaskóli er hnetulaus skóli! 


Nesti og matarvenjur

Mikilvægt er að nemendur borði hollan og staðgóðan morgunmat áður en farið er í skólann. Boðið er upp á frían hafragraut fyrir alla nemendur skólans þriðjudaga – föstudaga. Yngsta stigið fær hafragraut kl. 8:00 – 8:15 og miðstig kl. 8:15 – 8:30. Hörðuvallaskóli leggur áherslu á að nemendur komi með ávexti og grænmeti sem nesti og drekka vatn. Foreldrar hafa þó val um að senda börn sín með annað hollt og gott nesti.

Í umhverfisvænu samfélagi leggjum við áherslu á að nemendur komi með allt nesti í fjölnota umbúðum. Nemendur sem koma með nesti í einnota umbúðum taka þær með sér heim til förgunar. Hafa ber í huga að skólinn er hnetulaus.


 

Þessi síða var uppfærð í október 2024