Bleiki dagurinn er á morgun, miðvikudaginn 21. október.
Á bleika deginum hvetjum við nemendur og starfsfólk Hörðuvallaskóla til að klæðast bleiku og glæða skólann bleikum ljóma til stuðnings og samstöðu við þá sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra.
Þá minnum við á vetrarfrí sem er dagana 22. og 23. október. Þá daga er skólinn lokaður sem og frístund.