Kór Hörðuvallaskóla syngur í Hörpu á Barnamenningarhátíð laugardaginn 25. apríl næstkomandi kl 14:30. Þarna verða fleiri æskukórar af höfuðborgarsvæðinu. Öll velkomin!
Kórmeðlimir eru á aldrinum 8-13 ára og árlega æfa um eða yfir 50 börn með kórnum. Fyrir utan söng á skólaskemmtunum þá syngur kórinn syngur við fjölbreytt tækifæri utan skóla s.s. á Aðventuhátíð Kópavogsbæjar auk árlegra tónleika á Barnamenningarhátíð í Kópavogi. Á 70 ára afmæli Kópavogs haustið 2023 frumfluttu barnakórar Kópavogs safn nýrra verka eftir íslensk tónskáld í Salnum. Kórinn tekur jafnan þátt í Landsmótum íslenskra barnakóra sem haldin eru á vegum Tónmenntakennarafélags Íslands, nú síðast í Kópavogi vorið 2023 og þar áður á Hvolsvelli haustið 2024.
Kór Hörðuvallaskóla hlakkar til að endurnýja kynnin við Hörpu með nýja kórmeðlimi innanborðs. Það er dýrmæt menningarupplifun að fá tækifæri til að syngja í þessu glæsilega tónlistarhúsi.
|
Baugakór 38, 203 Kópavogur Sími: 441-3600 |
Skrifstofa skólans er opin kl. 08:00-15:00 virka daga á starfstíma skólans. |
Tilkynningar um veikindi / leyfisóskir vegna nemenda: 441-3600 / ritari.horduvallaskola@kopavogur.is