Hörðuvallaskóli tekur nú þátt í alþjóðlegu Erasmus+ verkefni sem ber yfirskriftina STEAMing Ahead – Sustainable Futures through Innovative Education. Verkefnið hófst formlega þann 1. Október 2025 og því lýkur 30. September 2027.
Markmið verkefnisins er að efla kennslu í náttúruvísindum, tækni, verkfræði, listum og stærðfræði (STEAM) með áherslu á sjálfbærni og stafræna nýsköpun. Kennarar fá ný verkfæri og aðferðir til kennslu í gegnum netnámskeið, leiðbeiningar og skapandi leiki „Escape Games“, sem þróðair verða í verkefninu. Nemendur fá tækifæri til að þróa gagnrýna hugsun, samvinnu og lausnamiðaða nálgun í námi.
Verkefnið er samstarf sex skóla og stofnana frá Íslandi, Tyrklandi, Litháen, Grikklandi og Lettlandi, sem er verkefnisstýrandi.
Með þátttöku í STEAMing Ahead styrkir Hörðuvallaskóli stefnu sína í jafnrétti, fjölbreytni og sjálfbærni og gefur bæði nemendum og kennurum tækifæri til að taka þátt í skapandi alþjóðlegu samstarfi.
Verkfnið STEAMing Ahead er Erasmus+ samstarfsverkefni í skólastarfi sem miðar að því að efla STEAM-menntun (Science, Technology, Engineering, Arts, Mathematics) með áherslu á sjálfbærni, stafræna tækni og leikjavædda kennslu.
STEAMing Ahead – Sjálfbær framtíð með nýsköpun í menntun
Verkefnið leggur áherslu á að styrkja STEAM-menntun með því að samþætta sjálfbærni, stafræna kennsluhætti og leikjavæðingu. Kennarar fá nýstárleg verkfæri og aðferðir í gegnum netnámskeið (MOOC), hæfniramma og „Escape Games“ sem auka gagnrýna hugsun og vandamálalausn hjá nemendum.
Helstu markmið:
Fyrsti fundur í verkefninu verður haldinn í Kekava í Lettlandi 4.-5. desember 2025. Þjálfunarbúðir fyrir kennara fara fram á Mykonos-eyju í Grikklandi í maí 2026. Verkefnisfundir verða því næst haldnir í Denizli í Tyrklandi í September 2026 og annar í Istanbul í Tyrklandi í maí 2027. Lokaráðstefna fer svo fram á Íslandi í September 2027.
|
Baugakór 38, 203 Kópavogur Sími: 441-3600 |
Skrifstofa skólans er opin kl. 08:00-15:00 virka daga á starfstíma skólans. |
Tilkynningar um veikindi / leyfisóskir vegna nemenda: 441-3600 / ritari.horduvallaskola@kopavogur.is