Kópurinn - viðurkenningar menntaráðs Kópavogs

Menntaráð Kópavogs auglýsir hér með eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir framúrskarandi skólastarf í grunnskólum Kópavogs.

Viðurkenningar verða veittar fyrir 3 – 5 verkefni sem stuðla að nýbreytni og framþróun innan skólanna. Með því er átt við nýjungar í skólastarfi eða þróunarverkefni sem fela í sér umbætur eða leiða til framfara í skólastarfi.

Auk þess er æskilegt að verkefnið sýni:

  • – að það hefur verið unnið af frumkvæði, fagmennsku og ábyrgð.
  • – að það hafi leitt til umbóta og/eða framfara í skólastarfi.
  • – að það feli í sér hvatningu til eftirbreytni innan viðkomandi skóla og utan.


Skriflegar tilnefningar skulu berast rafrænt á sérstöku eyðublaði til grunnskóladeildar Kópavogs til hekla@kopavogur.is eigi síðar en 27. apríl 2018.  Eyðublaðið má nálgast hér..


Athugasemdir