Úrslit í æsispennandi lestrarspretti Hörðuvallaskóla lauk í dag með yfirgnæfandi sigri nemenda sem kepptu á móti starfsfólki skólans. Þau lásu samtals í 3250 klukkutíma en starfsfólkið í 1260 klukkutíma. Börnin fá að launum heiðurinn af að vera mestu lestrarhestar skólans en auk þess eiga þau von á smávegis glaðningi á mánudaginn.
Lestrarspretturinn var settur þann 13. mars og átti að standa til 27. mars, en var framlengdur fram yfir páskafrí. Þátttakendur gátu fylgst með gengi síns liðs á Íslandskortinu á vegg skólasafnsins og þar má einnig sjá báta sem sýna höfunda margra þeirra bóka sem lesnar voru á tímabilinu.
Viðburðurinn heppnaðist virkilega vel og vakti mikinn áhuga og spennu hjá bæði nemendum og starfsfólki.
|
Baugakór 38, 203 Kópavogur Sími: 441-3600 |
Skrifstofa skólans er opin kl. 08:00-15:00 virka daga á starfstíma skólans. |
Tilkynningar um veikindi / leyfisóskir vegna nemenda: 441-3600 / ritari.horduvallaskola@kopavogur.is