Mislitir sokkar á föstudaginn 20. mars - Alþjóðlegur dagur Downs heilkennis

Alþjóðlegur dagur Downs heilkennis er 21. mars. Í tilefni dagsins er hefð fyrir því að hvetja almenning til þess að klæðast mislitum sokkum með það að markmiði að vekja jákvæða athygli á einstaklingum með Downs heilkenni.

Við í Hörðuvallaskóla ætlum að taka þátt í deginum og fagna fjölbreytileikanum og klæðast litríkum og ósamstæðum sokkum föstudaginn 20. mars.

Fögnum fjölbreytileikanum og tökum öll þátt