Skólahald fellur niður föstudaginn 14. febrúar

Rík­is­lög­reglu­stjóri hef­ur lýst yfir óvissu­stigi al­manna­varna fyr­ir allt landið vegna aftaka­veðurs á morg­un, föstu­dag 14. febrúar. Rauð veðurviðvörun hefur verið gefin út fyrir höfuðborgarsvæðið frá kl. 7 í fyrramálið sem þýðir að fólk á ekki að vera á ferðinni nema brýna nauðsyn beri til.

Reglulegt skólahald fellur niður en leikskólar og grunnskólar verða engu að síður opnir með lágmarksmönnun fyrir fólk sem þarf nauðsynlega á vistun fyrir börn sín að halda – það er fólk sem sinnir neyðarþjónustu, löggæslu, slökkvistörfum og björgunarsveitarútköllum.

Veðrið gengur niður eftir kl. 15.00 samkvæmt spá sem þýðir að ýmis þjónusta raskast eða fellur niður í fyrramálið og jafnvel allan daginn.

Bæjarskrifstofur Kópavogs eru lokaðar en símsvörun sinnt.

Sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu verða lokaðar en opna kl. 15.00.

Söfn verða lokuð á morgun.

Ferðaþjónusta fatlaðra fellur niður fram að hádegi og truflun gæti orðið á annarri þjónustu velferðarsviðs, s.s. heimaþjónustu.

Fólk er hvatt til þess að halda sig heima í fyrramálið og fylgjast vel með tilkynningum frá almannavörnum í fjölmiðlum.

Samkvæmt spám á veður að ganga niður eftir hádegi og verður hægt að vera á ferðinni eftir kl. 15.00.

Staðan verður endurmetin í fyrramálið.

Frekari upplýsingar um veðurviðvaranir á síðu Veðurstofunnar.

https://www.vedur.is/vidvaranir/svaedi/rvk


Athugasemdir