Skólahreysti - 5. sæti í riðlinum

Keppendur Hörðuvallaskóla í Skólahreysti 2018
Keppendur Hörðuvallaskóla í Skólahreysti 2018

Keppendur okkar í Skólahreysti stóðu sig með sóma og lentu í 5. sæti í sínum riðli en í honum kepptu 12 skólar. Það var Varmárskóli sem fór með sigur af hólmi í riðlinum, í öðru sæti varð Lindaskóli, Garðaskóli í þriðja sæti, Álfhólsskóli í fjórða og Hörðuvallaskóli í fimmta.  Á myndinni má sjá liðið okkar sem var okkur sannarlega til sóma, þetta eru þau Telma, Óskar, Sverrir, Tryggvi Geir, Steinunn Silja og Thelma Rós.


Athugasemdir