Starfsáætlun Hörðuvallaskóla 2018-2019

Nú er starfsáætlun Hörðuvallaskóla fyrir skólaárið 2018-2019 komin á heimasíðuna. Starfsáætlun er gerð árlega og er hún hluti af skólanámskrá skólans. Í árlegri starfsáætlun er m.a. gerð grein fyrir stjórnskipulagi skólans, skóladagatali, þ.m.t. lengd jólaleyfis, páskaleyfis og annarra vetrarleyfa, starfsáætlun nemenda, skólareglum, fyrirkomulagi kennslu, stoðþjónustu, félagslífi og öðru því sem varðar starfsemi skólans ár hvert. Þar eru einnig birtar upplýsingar um starfslið skólans, stjórnkerfi, mögulegan stuðning fyrir nemendur og almennar, hagnýtar upplýsingar um skólahald hvers skólaárs. Starfsáætlun er árlega lögð fyrir skólanefnd til staðfestingar sem staðfestir gildistöku þegar ljóst er að hún hafi verið unnin í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá, kjarasamninga og ákvarðanir sveitarstjórnar um fyrirkomulag skólahalds.
Starfsáætlun er birt á heimasíðu skólans og þar er einnig að finna aðra hluta skólanámskrár, þ.e. starfsmannahandbók og skipulag námssviða.  Smellið hér til að opna ritið..


Athugasemdir