Þriðjudaginn 24. mars var Stóra upplestrarkeppnin haldin hátíðleg í Salnum í Hamraborg.Þar komu saman lesarar frá níu skólum Kópavogs til að lesa bæði texta og ljóð.
Okkar fulltrúar í keppninni voru þau Jón Þorsteinn og Snædís Eva, en Ísold Þórdís var varamaður. Öll höfðu þau æft sig af miklu kappi enda stóðu þau sig með einstakri prýði og voru skólanum okkar til mikils sóma.
Hörðuvallaskóli átti líka flotta fulltrúa í hópi þeirra sem fluttu tónlistaratriði á milli dagskrárliða, en þær Ángela Inga og Ólavía spiluðu báðar á vegum Skólahljómsveitar Kópavogs.
Við þökkum öllum þessum frábæru krökkum fyrir þeirra framlag og flotta frammistöðu 🥰
|
Baugakór 38, 203 Kópavogur Sími: 441-3600 |
Skrifstofa skólans er opin kl. 08:00-15:00 virka daga á starfstíma skólans. |
Tilkynningar um veikindi / leyfisóskir vegna nemenda: 441-3600 / ritari.horduvallaskola@kopavogur.is