Um samgang barna eftir skólatíma á meðan á samkomubanni stendur

Foreldrar eru hvattir til þess að takmarka samgang allra í fjölskyldunni við aðra utan fjölskyldunnar sem mest og hafa í huga að halda ákveðinni fjarlægð á milli einstaklinga ásamt hreinlætisaðgerðum. Þetta gildir hvort sem um er að ræða vini eða ættingja.

Foreldrar bera að sjálfsögðu ábyrgð á því hvernig þeir útfæra þessar grunnreglur um samskipti en í raun þýðir þetta að ekki er hvatt til þess að börn séu að hittast til að leika eða læra saman að óþörfu.

*Til viðbótar og áréttingar: Tilmælin eru ekki klippt og skorin og fyrst og fremst verið að biðla til fólks að fara varlega, draga úr samneyti og sinna vel hreinlætisaðgerðum. Ef fólk telur sig hafa stjórn á aðstæðum þarf að taka ákvarðanir út frá því. Eðli málsins samkvæmt er ekki hægt að ráðleggja um þetta í smáatriðum, einungis út frá grunnhugmyndafræðinni. Fólk verður að sýna því skilning að um nýjar aðstæður er að ræða og hlutirnir breytast nú dag frá degi. Góðar stundir.

Fengið að láni frá heimili og skóla


Athugasemdir