Vorhátíð

Foreldrafélag Hörðuvallaskóla, í samstarfi við skólann, stendur fyrir vorhátíð miðvikudaginn 23.maí kl. 17:00

Hátíðin hefst á slaginu 17:00 með tónum frá skólahljómsveit Kópavogs

  • Hoppukastalar (fleiri og stærri en áður)
  • Skólahreysti og Veltibíll
  • Fótbolti milli 10. bekkjar og kennara

Einnig verður boðið upp á grillaðar pylsur og djús

Kökubasar til styrktar 10.bekkjarferðar (ekki tekið við kortum)

Lokað verður inn á bílastæði starfsmanna við skólann, þar verður skólahreystibrautin.

Hlökkum til að sjá sem flesta í sólskinsskapi

Við lögðum allavega inn pöntun fyrir góðu veðri en annars er það bara regngallinn J

Að lokum hvetjum við alla til að koma gangandi, því takmarkað er af bílastæðum

Með kveðju

Stjórn Foreldrafélagsins


Athugasemdir