Afmælishátíð Hörðuvallaskóla

Kæru forsjáraðilar,

Hörðuvallaskóli fagnar 20 ára afmæli og af því tilefni verða hátíðarhöld hjá okkur í dag, föstudaginn 13. nóvember. Forsjáraðilar eru velkomnir og hvattir til að fagna með okkur, afmælisdagskráin byrjar kl. 12:30 á sal skólans. Nemendur hafa síðustu vikur unnið ýmis verkefni í tilefni af afmælinu, sem skreyta skólann og gefa honum enn meira líf. Listaverkin verða til sýnis á göngum skólans og boðið verður uppá kaffi og köku.

Við hlökkum til að sjá sem flesta.

Afmæliskveðjur,
starfsfólk Hörðuvallaskóla