Barnaheill afhendir nýtt námsefni í vináttuverkefni

Í gær afhenti Margrét Júlía Rafnsdóttir frá Barnaheillum stjórnendum í Hörðuvallaskóla, Lindaskóla og Vatnsendaskóla nýtt grunnskólaefni um bangsann Blæ í Vináttuverkefni Barnaheilla. Þórunn Jónasdóttir skólastjóri tók við efninu fyrir Hörðuvallaskóla.

Vinátta felst í því að fyrirbyggja einelti með því að móta góðan skólabrag, eiga góð samskipti og hafa jákvæð viðhorf til allra í hópnum. Lögð er sérstök áhersla á að ná til þeirra barna og fullorðinna sem verða vitni að einelti og hvetja þau til að bregðast við því


Athugasemdir