STEAMing Ahead - fréttabréf 2

Dagana 28. – 31. maí 2026 voru haldnar þjálfunarbúðir fyrir þátttakendur í Erasmus-verkefninu STEAMing Ahead á grísku eyjunni Mykonos. Þangað komu fulltrúar Hörðuvallaskóla ásamt fulltrúum frá Grikklandi, Lettlandi, Litháen og Tyrklandi. Þar var farið yfir stöðu verkefnisins ásamt því að þátttakendur fóru í gegnum og gerðu mat á stafrænu fræðsluefni verkefnisins.

Fulltrúar landanna kynntu sér einnig menningu og sögu Mykonos og byggðu upp sterkari tengsl milli þeirra fimm þjóða sem taka þátt í verkefninu.

Sjá fréttabréfið: STEAMING AHEAD NEWSLETTER 2 MYKONOS