Dugnaðarforkur Heimilis og skóla árið 2026

Fanný Guðbjörg Jónsdóttir formaður foreldrafélagsins hlaut viðurkenningu Heimilis og skóla sem Dugnaðarforkur árið 2026. Fanný á sannkallað hrós skilið fyrir öfluga formennsku og hefur eflt foreldrasamstarf við skólann. Foreldrafélagið, undir hennar stjórn, hefur tekið í gegn Kastalann og gert upp tvö rými fyrir félagsmiðstöðina okkar á miðstigi. Fanný er vel að þessari viðurkenningu komin og erum við afskaplega stolt af henni og flotta foreldrafélaginu okkar. Innilega til hamingju Fanný 💕