Hörðuvallaskóli er þátttakandi í verkefninu STEAMing Ahead (Sustainable Futures through Innovative Education) og fór fram verkefnafundur (TPM=Transnational Project Meeting) í borginni Denizli í Tyrklandi dagana 24.-25. September 2026. Auk Hörðuvallaskóla eru þátttakendur frá Grikklandi, Tyrklandi, Litháen og Lettlandi sem er verkefnisstýrandi í verkefninu.
Verkefnið snýst um að gera nám í vísindum, tækni, verkfræði, listum og stærðfræði, sem gjarnan eru kallaðar STEAM-greinar, meira spennandi en ella og tengja þær við sjálfbærni og stafræna framtíð með nýsköpun. Í verkefninu verða þróuð nýstárleg námsgögn með því m.a. að hanna leikjamiðað nám (Escape Games). Námsefnið verður svo aðgengilegt á stafrænum vettvangi.