Hörðuvallaskóli fagnaði 20 ára afmæli 13. nóvember síðastliðinn með pompi og prakt.
Um morguninn lögðu nemendur og starfsfólk lokahönd á undirbúning og út um allan skóla spruttu upp myndarleg listaverk. Nemendur í 7. bekk fengu þá skemmtilegu hugmynd að bjóða yngri nemendum skólans upp á andlitsmálningu og vakti það mikla lukku. Rétt fyrir hádegi breiddist út dansfiðringur meðal nemenda þegar Íris Björk Eysteinsdóttir birtist í miðrýminu með stóra ferðahátalarann. Þegar gestir byrjuðu að streyma í hús var því mikil gleði í húsinu þar sem nemendur voru enn að dansa af mikilli innlifun í þessu óvænta danspartýi.
Afmælisdagskráin hófst í hádeginu á sal skólans með ávarpi Ásdísar Kristjánsdóttur bæjarstjóra og því næst flutti Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skólastjóri ávarp. Áslaug Helga Hálfdánardóttir höfundur skólasöngs Hörðuvallaskóla, kom og spilaði undir samsöng og tóku viðstaddir undir af krafti í skólasöngnum og í afmælissöng fyrir skólann. Tveir nemendur úr 3. bekk, þau Björt Eva Brink Gestsdóttir og Ernir Rafn Elvarsson, sýndu meistaralega danstakta og eiga mikið hrós skilið.
Formlegri dagskrá lauk með stuttu ávarpi fulltrúa úr hópi fyrsta útskriftarárgangs skólans en því næst höfðu gestir tækifæri til að ganga um skólans og kynna sér ýmis verkefni sem unnin höfðu verið í tilefni af afmælinu. Þar mátti meðal annars sjá myndir sem 4. bekkingar teiknuðu af öllum fjórum skólastjórum skólans í fullri stærð, súlurit yfir nemendafjölda í skólanum yfir 20 ára starfstímabil hans og ýmis fleiri skemmtileg verk. Það sem vakti einna mesta athygli var stórt og litríkt listaverk í sal skólans með sjálfsmyndum núverandi nemenda og starfsfólks.
Eins og í öllum góðum afmælisveislum var boðið upp á gómsætar veitingar. Boðið var upp á pizzur í hádegismat áður en gestir komu í hús og á opna húsinu fengu allir afmælisköku og djús.
|
Baugakór 38, 203 Kópavogur Sími: 441-3600 |
Skrifstofa skólans er opin kl. 08:00-15:00 virka daga á starfstíma skólans. |
Tilkynningar um veikindi / leyfisóskir vegna nemenda: 441-3600 / ritari.horduvallaskola@kopavogur.is