Á fimmtudaginn hlaut Hörðuvallaskóli þrjár viðurkenningar fyrir framsækin og metnaðarfull verkefni innan skólans.
Tengslatorg var tilnefnt til foreldraverðlauna Heimilis og skóla og auk þess var Íris Björk, aðstoðarskólastjóri, tilnefnd sem Dugnaðarforkur. Tengslatorgið hlaut hvatningarverðlaun fyrir sitt mikilvæga starf í þágu tengsla heimila og skóla.
Á sama tíma fór fram afhending Kópsins, verðlauna Kópavogsbæjar fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf. Þar voru þrjú verkefni frá Hörðuvallaskóla tilnefnd:
- Tengslatorg
- Friðheimar
- Land og þjóð – þemaverkefni úr 2. bekk.
Tvö þessara verkefna, Tengslatorg og Friðheimar, hlutu verðlaun.
Friðheimar – ró og stuðningur fyrir fjölbreyttan nemendahóp
Kristín Friðbjörnsdóttir, Tinna Ástrún Grétarsdóttir, Leifur Heiðar Leifsson og Matthildur Þorvaldsdóttir fengu viðurkenningu fyrir verkefnið Friðheimar – nýtt skynúrvinnslurými sem styður við nemendur sem þurfa ró og aukinn stuðning.
Rýmið er hannað með mjúkri lýsingu, róandi tónlist og hjálpartækjum sem stuðla að jafnvægi í taugakerfi og bættri sjálfsstjórn. Friðheimar hafa reynst dýrmæt viðbót við skólastarfið, bætt líðan nemenda, dregið úr álagi í bekkjum og skapað stuðningsumhverfi fyrir fjölbreyttan hóp barna.
Tengslatorg – brú á milli heimila og skóla
Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir, Íris Björk Eysteinsdóttir og Hildur Jónasdóttir, skólastjórnendur Hörðuvallaskóla, hlutu viðurkenningu fyrir verkefnið Tengslatorg sem styrkir tengsl heimila og skóla með það að markmiði að efla velferð, líðan og félagslega stöðu nemenda.
Verkefnið byggist á þremur meginþáttum:
- Fræðsla fyrir foreldra um uppeldi, mörk og mikilvægi samveru,
- Líðanfundir (Tengslatorg) þar sem foreldrar ræða saman – með samþykki barna – um líðan og félagslega stöðu þeirra,
- Farsældarsáttmáli, þar sem sameiginleg viðmið um svefn, skjátíma og fleiri þætti eru mótuð í samstarfi foreldra og skóla.
Tengslatorg hefur eflt traust og samstöðu meðal foreldra og í samskiptum heimila og skóla. Það hefur skilað sér í betri bekkjaranda, aukinni vellíðan nemenda og öflugri tengslamyndun – sérstaklega fyrir nýja foreldra innan skólans.
Við erum afar stolt af þessum verðlaunum og lítum á þau sem viðurkenningu fyrir samhent og faglegt starf starfsfólks, sem vinnur daglega að því að gera skólann að öruggu og öflugu námsumhverfi fyrir öll börn og einnig öflugt foreldrasamstarf sem er á góðri leið með að búa til okkar eigið þorp hér í efri byggðum.