Kópavogsmót grunnskólasveita í skák

Miðvikudaginn 14. október var haldið Kópavogsmót grunnskólasveita í skák í glersalnum í stúkunni við Kópavogsvöll. Mótið var liðakeppni fyrir alla grunnskóla í Kópavogi.

Um eitt hundrað keppendur tóku þátt úr 1.-7. bekk Hörðuvallaskóla og keppt var í tveimur flokkum, A-mót, 1.–4. bekk og B-mót, 5.–10. bekk.

Þess ber að geta að Hörðuvallaskóli lenti í öðru sæti í aldursflokknum 1.-4. bekk. Mikil þátttaka var í B-móti , 5-10. bekk og náði Hörðuvallaskóli einnig ágætis árangri í þeim aldursflokkum. Hver skóli mátti senda eins mörg lið og hann vildi.