Skólaslit og útskrift 7.bekkjar

Þriðjudaginn 9. júní útskrifuðum við 7. bekk og erum við afar stolt af þessum frábæru nemendum sem halda áfram í Kóraskóla í haust. Við þökkum þeim innilega fyrir samfylgdina síðustu ár og óskum þeim velfarnaðar á nýjum vettvangi.


Miðvikudaginn 10. júní fóru fram skólaslit hjá nemendum í 1.–6. bekk. Við það tilefni léku tveir nemendur úr Skólahljómsveit Kópavogs fyrir gesti og kór Hörðuvallaskóla flutti nokkur lög.


Við óskum ykkur öllum gleðilegs sumars og vonum að þið hafið það sem allra best í sumar.