Fréttir

Skákmót á netinu vorið 2020

Lesa meira

Bréf frá sóttvarnalækni og landlækni varðandi skólastarf English below/polski poniżej

Meðfylgjandi er bréf frá sóttvarnalækni og landlæknisembættinu varðandi skólastarf.
Lesa meira

Viðmið í fjarkennslu

Nú þegar nær öll börnin okkar eru að fá einhverja fjarkennslu vildum við deila með ykkur þeim viðmiðum sem Hörðuvallaskóli notast við. Eftir sem áður ekki hika við að hafa samband við kennara ef upp vakna spurningar.
Lesa meira

Frá Almannavarnardeild lögreglu og Landlækni

Reykjavík 20. mars 2020 Efni: Samkomubann og börn Skólar, leikskólar og íþróttafélög hafa skipulagt vandlega fyrirkomulag næstu daga og vikur til að fara eftir fyrirmælum heilbrigðisráðherra um takmarkanir á skólastarfi og samkomum. Það er mikilvægt að forráðamenn barna dragi á sama tíma úr fjölda einstaklinga í tengslaneti barna sinna utan skólatíma til að vinna ekki gegn þessum ráðstöfunum. Gott er að hafa eftirfarandi í huga: • Skólafélagar sem ekki eru í sama hópi í skólastarfinu ættu ekki að vera í návígi utan skóla. • Hafi börnin þroska til að fara eftir leiðbeiningum sem snúa að minni snertingu við vini er ekki útilokað að þau geti hist í leikjum. Leikirnir mega ekki fela í sér beina snertingu, notkun á sameiginlegum leikföngum eða búnaði sem snertur er með berum höndum. • Börn og ungmenni ættu ávallt að þvo sér vel um hendur bæði áður en þau hitta félaga sína og eftir að þau koma heim. • Fjölskyldur ættu að hafa í huga að ef börnin umgangast mikið vini eða frændsystkini úr öðrum skólum eða skólahópum þá verður til tenging milli hópa sem annars væru aðskildir. Slíkt ætti að forðast eins og kostur er. • Fjölskyldur eru hvattar til að nýta sér tæknina til að halda góðum tengslum við ástvini sem eru í áhættuhópum vegna COVID-19 sýkinga, eldra fólk og fólk með undirliggjandi sjúkdóma. • Einnig væri hægt að nota tækifærið að kenna börnunum að skrifa sendibréf og æfa í leiðinni skrift, stafsetningu, virkja ímyndunaraflið og hugsa í lausnum þegar kemur að samskiptum við ástvini okkar. Varðandi heimili þar sem sumir eru í sóttkví en aðrir ekki: • Börn sem hafa þroska og getu til að sinna eigin hreinlæti og halda viðeigandi fjarlægð við foreldra sem eru í sóttkví sem og við skólafélaga geta áfram sinnt námi í skólastofu. Mikilvægt er að gæta að hreinlæti t.d. nota sér salernisaðstöðu. • Foreldrar stálpaðra barna sem eru í sóttkví og geta haldið viðeigandi fjarlægð frá börnunum meðan á sóttkví stendur geta áfram sinnt vinnu á vinnustað ef fjarvinna er ekki í boði. • Heimilið verður allt að fara í sóttkví ef börn hafa ekki þroska eða getu til að virða þær ráðstafanir sem gilda í sóttkví. Önnur leið til að leysa slíkt væri ef þeir sem ekki eru í sóttkví færu eitthvað annað á meðan á henni stendur. https://www.ahs.is/wp-content/uploads/2020/03/Samkomubann-og-b%C3%B6rn-20.03.2020.pdf
Lesa meira

Hvað þarf að hafa í huga í fjarnámi

Við settum fram myndræna hugmynd að skipulagi fyrir nemendur í fjarnámi. En nemendur á mið- og ungingastigi eru að hluta til í fjarnámi þessa dagana vegna samkomubanns. Kennarar styðja nemendur og foreldrar styða þá líka en nemendur sjálfir bera meiri ábyrgð en áður, því þó kennarar haldi þeim við efnið í gegnum netið og foreldrar heima er það ólíkt því að mæta fullan skóladag. Meginmarkmið okkar er að stuðla að því að nemendur haldist virkir í námi sínu og haldi tengslum við kennara þrátt fyrir fjarveru frá skóla. Nemendur og kennarar eru vel undirbúin vegna nokkurra ára hefðar í notkun tækninnar hjá okkur.
Lesa meira