Fréttir

Íslandsmeistarar í sjötta sinn!

Íslandsmeistarar í sjötta sinn! A-sveit Hörðuvallaskóla vann yfirburðasigur á Íslandsmóti grunnskólasveita í skák, sjötta skiptið í röð sem er Íslandsmet! Sveitin hlaut 26 vinninga af 28 mögulegum eða tæp 93%. A-sveit Rimaskóla hafnaði í öðru sæti með 18 ½ vinning og A-sveit Laugalækjarskóla varð þriðja með 17 vinninga. Sveit HV var þannig skipuð að venju: Vignir Vatnar Stefánsson, Stephan Briem, Arnar Milutin Heiðarsson, Sverrir Hákonarson og Óskar Hákonarson. Liðsstjórar voru Gunnar Finnsson og Óskar Hákonarson. Vignir, Stefán og Arnar fengu viðurkenningu fyrir besta árangur á fyrsta, öðru og þriðja borði en þeir unnu allar sínar skákir. Sverrir vann einnig allar skákir sínar en tefldi færri. B-sveit HV, sigurvegarar í Íslandsmóti barnaskólasveita, tók þátt í grunnskólamótinu og lenti í 8.-9. sæti með 14 vinninga. Sveitin var þannig skipuð: Benedikt Briem, Grétar Jóhann Jóhannsson, Guðrún Fanney Briem, Guðmundur Reynir Róbertsson, Hilmar Óli Viggósson og Alexander Rúnar Róbertsson. Liðsstjóri var Kjartan Briem. B-sveitin hlaut viðurkenningu fyrir besta frammistöðu B-liða í mótinu. Lið Hörðuvallaskóla sem sigruðu á Íslandsmóti barnaskóla – og grunnskólasveita unnu sér þar með rétt til að tefla fyrir Íslands hönd á Norðurlandamótinu í skólaskák sem fram fer í Svíþjóð í september. Þetta er líklega í fyrsta sinn sem tvær sveitir frá sama skóla hérlendis, tefla á Norðurlandaskákmóti. Til hamingju krakkar fyrir glæsilegan árangur! Skákkennari
Lesa meira

Páskaopnun/Easter opening Frístund

Páskaopnun Dægradvalar English below/Jezyk polski na dole
Lesa meira

Hörðuvallaskóli Íslandsmeistari í skák!

Íslandsmót barnaskólasveita í skák – 4.-7. bekkur – 2019 Hörðuvallaskóli Íslandsmeistari! Eins og fram hefur komið vann A-sveit HV Íslandsmótið sem haldið var um helgina í Rimaskóla. 37 lið frá 20 skólum tóku þátt í keppninni, þar af 5 frá Hörðuvallaskóla. Sigurliðið: Benedikt 7.M, Grétar Jóhann 7.R, Guðrún Fanney 3.b, Snorri Lund 6.L., Guðmundur Reynir 7.M og Hilmar Óli 6.HG. Liðið vann alla andstæðinga sína 7 að tölu og hlaut 14 stig og 23 vinninga. A-sveit Háteigsskóla varð í 2. sæti með 21 vinning og A-sveit Salaskóla þriðja með 18 vinninga. Grétar Jóhann fékk 6 ½ vinning af 7 og Guðrún Fanney vann alla andstæðinga sína! Þau hlutu bæði viðurkenningar fyrir besta árangur á öðru og þriðja borði. B-sveit HV: Alexander Rúnar 7.M, Breki Freyr 6.L, Davíð J. 7.Ú og Atlas 7.b. Liðið vann fimm viðureignir og tapaði tveimur; hlaut 10 stig og 16 vinninga í 12. sæti. Davíð og Atlas á þriðja og fjórða borði unnu fimm af sjö skákum sínum. C-sveitin: Elmar Franz 6.S, Dagur 7.Ú, Bjarki Steinn 6.b. og Ísak Freyr 6.HH. Liðið vann tvær viðureignir, gerði þrjú jafntefli og tapaði tveimur. Fékk 7 stig og 14 vinninga í 20. sæti. Ísak Freyr á fjórða borði vann sex af sjö skákum sínum. D-sveitin: Róbert 7.R, Anton 5.K, Atli 7.R og Jökull Bóas 4.E. Liðið vann fjórar viðureignir og tapaði þremur. Fékk 8 stig og 14 ½ vinning í 18. sæti og varð efst D-sveita í mótinu og hreppti verðlaunapeninga að launum. Jökull Bóas á fjórða borði vann fimm af sjö skákum sínum. E-sveitin: Ari 6.HH, Benjamín 7.R, Pálmar 7.R og Daníel Máni 5.K. Liðið vann tvær viðureignir, gerði tvö jafntefli og tapaði þremur. Fékk 6 stig og 12 vinninga í 28. sæti. Sveitin var verðlaunuð fyrir besta árangur E-sveita (var reyndar eina E-sveitin). Daníel Helgi á fjórða borði vann fjórar af sex skákum sínum. Mótið fór hið besta fram og var öllum keppendum HV til sóma. Liðsstjórar voru auk skákkennara, Kjartan Briem faðir Benedikts og Guðrúnar Fanneyjar og Sigríður Lára Guðmundsdóttir móðir Snorra Lund. Þau stóðu sig af stakri prýði eins og vænta mátti og studdu vel við bakið á liðsmönnum sínum. Skákkennari
Lesa meira

Sóley sigurveigari!

Hörðuvallaskóli bar sigur úr býtum í Stóru upplestrarkeppninni sem haldin var í Salnum þann 7. mars. Sóley Jóhannesdóttir í 7. R kom, sá og sigraði, með glæsibrag. Innilega til hamingju, Sóley.
Lesa meira

Kópurinn - auglýst eftir tilnefningum

Menntaráð auglýsir eftir tilnefningum til viðurkenninga fyrir framúrskarandi grunnskóla- og frístundastarf í Kópavogi. Viðurkenningar eru veittar fyrir verkefni sem stuðla að nýbreytni og framþróun. Auk þess er æskilegt að verkefnið sýni að það hafi verið unnið að frumkvæði, fagmennsku og ábyrgð, að það hafi leitt til umbóta og/eða framfara, að það feli í sér hvatningu til eftirbreytni innan viðkomandi stofnunar og utan.
Lesa meira

Íslandsmeistari í snooker U21

Ólafur Ari (9. A) varð um helgina Íslandsmeistari í snooker U21. Við óskum honum innilega til hamingju með þennan frábæra árangur.
Lesa meira

Fréttabréf / matseðill marsmánaðar

Fréttabréf marsmánaðar er komið á heimasíðuna.. smellið á fyrirsögnina til að nálgast ritið..
Lesa meira

Upplestrarkeppni í 7. bekk

Fulltrúar Hörðuvallaskóla í Stóru upplestrarkeppninni verða þær Sóley Jóhannsdóttir 7. R og Ásta Margrét Haraldsdóttir 7. R. Til vara verða Eydís Eik Sigurðardóttir 7. G og Salka Finnsdóttir 7. M. Allir nemendur í árganginum tóku þátt í undankeppninni. Stóra upplestrarkeppnin verður haldin í Salnum þann 7. mars nk. klukkan 16:30. Við óskum stelpunum góðs gengis!
Lesa meira

Félag fagkvenna í heimsókn í 3. bekk

Í Félagi fagkvenna eru konur með sveinspróf, eru á námssamningi eða í námi í iðngreinum. Tilgangur félagsins er að hvetja konur til að sækja nám og störf í iðnaði og þá sér í lagi í karllægum iðngreinum. Þær komu til okkar í skólann í gær og héldu kynningu fyrir krakkana í 3. bekk.
Lesa meira

Vinabangsinn Blær í heimsókn

Vinabangsinn Blær heimsótti nemendur í 1. og 2. bekk í dag. Með þeim á sal voru nemendur af leikskólunum Austurkór, Kór og Baugi. Blær fór yfir jákvæð samskipti og sungin voru nokkur lög sem allir nemendur voru búnir að æfa. Takk fyrir innlitið, Blær.
Lesa meira