06.01.2020
Við óskum ykkur öllum gleðilegs nýs árs og hlökkum til að vinna með ykkur á árinu.
Lesa meira
20.12.2019
Starfsfólk Hörðuvallaskóla óskar nemendum og aðstandendum þeirra gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum fyrir gott samstarf á árinu sem er að líða. Kennsla hefst skv. stundaskrá þann 6. janúar.
Lesa meira
15.11.2019
Það gekk aldeilis fínt í gær hjá krökkunum á skákmótinu í gær. A-sveit 3. bekkjar varð Kópavogsmeistari og C-sveitin (!) lenti í þriðja sæti. B-C og D sveitir fengu allar sérstakar viðurkenningar. Einar Á. og Adrian fengu borðaverðlaun.
A-sveit 4. bekkjar hafnaði í þriðja sæti í sínum aldursflokki. A-sveit 8.-10. bekkjar fékk silfur.
Semsagt; bronz í 5.-7. og 4.bekk, silfur í 8.-10. bekk og gull í 3.bekk. Virkilega flott frammstaða.
Lesa meira
06.11.2019
Ágætu foreldrar / forráðamenn nemenda í Hörðuvallaskóla
Við erum að hrinda af stað fyrirlestraröð með sálfræðingi skólans, einn morgunfundur í mánuði. Fyrsti fundur er föstudaginn 15. nóvember kl 8:30-9:15 og er haldinn í stóra salnum í Vallakór.
Í fræðslunni er skoðaður kvíðavandi barna út frá sjónarhorni foreldra. Hvað er hamlandi kvíði? Hvernig birtist hann gjarnan hjá börnum? En unglingum? Hvað hefur reynst vel til að hjálpa þeim að fást við kvíðavandann? Þessum spurningum og fleirum verður reynt að leita svara við á fundinum. Ekki láta þig vanta.
Erlendur Egilsson er sálfræðingur í Hörðuvallaskóla. Hann hefur starfað á Barna- & unglingageðdeild LSH (BUGL) og Barnaspítala Hringsins ásamt sjálfstæðum sálfræðistörfum. Hann hefur sinnt rannsóknum á þroska og hegðun barna og í doktorsnámi sínu rannsakað virkni snjallsímalausna við heilsueflingu barna og unglinga. Hann er 4 barna faðir. Þau eru mismiklir kvíðaboltar.
Hlökkum til að sjá sem flesta
bestu kveðjur
f.h. starfsmanna Hörðuvallaskóla
Þórunn skólastjóri
Lesa meira
07.10.2019
Við hvetjum ykkur til þess að kynna ykkur OKKAR KÓPAVOG
Lesa meira
07.10.2019
Fréttabréf októbermánaðar 2019
Lesa meira
09.09.2019
Við biðjum áhugasama foreldra um að gefa kost á sér sem bekkjarfulltúa skólaárið 2019-2020. Einnig minnum við á að foreldraröltið verður á sínum stað í vetur og hvetjum við alla foreldra til að mæta þegar þeirra bekkur/bekkir eiga rölt.
Lesa meira
26.08.2019
Við minnum á breyttan útivistartíma frá og með 1. september 2019.
12 ára og yngri mega lengst vera úti til klukkan 20 á skólatíma.
13-16 ára mega lengst vera úti til klukkan 22 á skólatíma.
Lesa meira
18.08.2019
Ágúst Frímann Jakobsson skólastjóri Hörðuvallaskóla verður í námsleyfi skólaárið 2019-2020. Þórunn Jónasdóttir sem starfaði áður sem aðstoðarskólastjóri mun taka við starfi skólastjóra á meðan. Við þessa tilfærslu hafa orðið fleiri breytingar á stjórnendateymi skólans. Inga Sigurðardóttir sem áður var deildarstjóri á yngsta- og miðstigi tekur við starfi aðstoðarskólastjóra. Guðbjörg Oddsdóttir hefur tekið við deildarstjórn á yngsta- og miðstigi.
Stjórnendateymið er því eftirfarandi;
Þórunn Jónasdóttir skólastjóri thorunnjona@kopavogur.is
Nína Ýr Nielsen skrifstofustjóri nina@kopavogur.is
Edda Kjartansdóttir aðstoðarskólastjóri eddakjar@kopavogur.is
Inga Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri ifjola@kopavogur.is
Guðbjörg Oddsdóttir deildarstjóri yngsta- og miðstigs goddsd@kopavogur.is
Lesa meira
18.08.2019
Opnað hefur verið fyrir skráningar í skólaboðunarviðtölin. Viðtölin fara fram 23. ágúst. 1. bekkur er einnig í viðtölum 26. ágúst en þann dag er skóli samkvæmt stundaskrá hjá nemendum í 2.-10. bekk. Frístundin er opin fyrir hádegi þann 26. ágúst fyrir nemendur í 1. bekk. Matseðilinn er kominn á heimasíðuna og minnum við á skráningu bæði í mat og í frístundina.
Hlökkum til að vinna með ykkur á komandi skólaári.
Lesa meira